Sigurjón er fæddur á Siglufirði 1939. Útskrifaðist frá MR 1959 og lagði stund á myndlist og arkitektúr á Ítalíu. Stundaði nám við handíða- og myndlistaskólann og Myndlistaskólann við Freyjugötu til 1963. Fór þá námsferð til London og dvaldi þar fram á 1964
Sigurjón var einn af fjórum stofnendum SÚM hópsins sem opnaði sýna fyrstu sýningu 1965 í Ásmundarsal og á Mokkakaffi. Gerir sína fyrstu leikmynd við sýningu Grímu á “Ég er afi minn” 1967.
Árin 1968 til 1973 dvaldi hann í Kaupmannahöfn og lagði stund á leikmynda- og búningahönnun sem hann hefur starfað við síðan.
Fyrstu leikmyndina gerir Sigurjón við Þjóðleikhúsið 1972 og er fastráðinn þar 1974. Ráðinn yfirleikmyndateiknari 1976 til 1988. Sat í þjóðleikhúsráði 1984 til 1988 fyrir hönd Félags íslenskra leikara.
Fyrir Þjóðleikhúsið hefur Sigurjón unnið fjölmörg verk, svo sem: Jón Arason, Kaupmann í Feneyjum, Góðu sálina í Sesuan, Sveyk í seinni heimsstyrjöldinni, Pétur Gaut, 13. Krossferðin, Niflungahringinn, Glerbrot, Fiðlarann á þakinu, Syngjandi í rigningunni og Virkjunina.
Auk þess hefur hann unnið fyrir Leikfélag Reykjavíkur, Leikfélag Akureyrar, Íslensku Óperuna og Íslenska Dansflokkinn og má nefna: Otello og La traviata fyrir Óperuna. Blindisleik og Dafnis og Clöe fyrir dansflokkinn. Íslandsklukkuna og Oliver Twist fyrir Leikfélag Akureyrar, en Máfahlátur og Chicago fyrir Leikfélag Reykjavíkur.
Sigurjón á nú að baki yfir eitt hundrað leikmyndir auk nokkurra kvikmynda s. s.: Á hjara veraldar, Atómstöðin, Nonni og Manni, Tár úr steini, Sporlaust og Kaldaljós.
Sunnudags síðdegi á Mokkakaffi. Klippimynd frá 1965 í eigu Listasafns Íslands.

Leikmynd við Pétur Gaut í Þjóðleikhúsinu 1990
Heiðin heimsmynd hönnuð vegan Landafundasýningar í Þjóðmenningarhúsi 2000



myndlistarmaður
hönnuður
leikmyndahöfundur