Í gegnum árin hefur Sigurjón málað margs konar myndir allt aftur til SÚM árana. Í dag er Sigurjón að mála myndir sem eru eins konar alþýðurómantík um leik og starf. Landið og lautartúrinn annars vegar, en sjávarsíðan og slorið hins vegar.
Árið 2009 varð Sigurjón 70 ára og í tilefni af því hélt hann sýningu í Gallery Fold. Í þessari sýningu fléttaði hann saman gömlum og
nýjum tímum, vatnslitum og tískumyndum. Í þessum skemmtilegu collage myndum fangar Sigurjón fortíðina og samtíman á skemmtilegan hátt.
.jpg)
.jpg)
Sigurjón hefur málað margar myndir frá síldarárunum á Siglufirði. Tími sem markaðist af mikilli athafnasemi, vinnu og uppgangi. Tími sem er horfinn en mun lifa með þjóðinni m.a. í myndum Sigurjóns.




myndlistarmaður
hönnuður
leikmyndahöfundur